Búið að keyra niður 75 kindur fyrir vestan 12. júlí 2010 05:00 Sauðfé við þjóðveginn í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum er í hættu á sumrin vegna vangár sumra ökumanna með hörmulegum afleiðingum. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar. FRÉTTABLAIÐ/STEFÁN
Sjötíu og fimm kindur hafa verið keyrðar niður á þjóðvegum á Vestfjörðum á tímabilinu 17. maí til 11. júlí. Síðast í fyrrinótt var ekið yfir tvö lömb sem bæði drápust. Einungis þrír eða fjórir ökumenn af öllum þessum fjölda hafa tilkynnt óhappið. Hinir hafa ekið í burtu frá fénu dauðu eða limlestu. Þetta segir Önundur Jónsson, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum. „Þessar ákeyrslur á sauðfé er árviss viðburður hjá okkur,“ segir hann. „Svo þegar lömbin fara að stækka, verða vitrari og varkárari fer heldur að draga úr þessu, því þau forðast þá frekar bílana. En ég tel að þetta haldi áfram fram yfir smölun í haust.“ Önundur segir að þeir ökumenn sem tilkynni ákeyrslu á fé séu hinir sömu og verði fyrir miklu tjóni á bílum sínum við áreksturinn. Hinir láti dýrin liggja eftir. „Yfirleitt kemst þetta þannig upp að aðrir vegfarendur láta okkur vita. Bóndinn sem á kindina sem ekið hefur verið á hefur síðan samband við okkur. Við skráum atvikið í dagbók lögreglu, prentum skráninguna út og sendum til viðkomandi tryggingafélags. Bændurnir eru tryggðir fyrir þessu að einhverju marki.“ Önundur segir að þarna sé fyrst og fremst um tryggingamál að ræða, en að sjálfsögðu einnig brot á dýraverndunarlögum, þegar ekið er á skepnu án þess að tilkynna það. „En það liggur of mikill kostnaður í því fyrir lögreglu að finna ökumann er hefur ekið á skepnu sem er búin að liggja í smá stund, svo ekki sé talað um tvo eða þrjá daga.“ Önundur kveðst telja að þeir sem skilji dýrin eftir í blóði sínu, lífs eða liðin, séu ekkert að stoppa. Þeir haldi bara áfram. „En það hlýtur að sækja eitthvað á menn þegar þeir hafa farið svona að ráði sínu og skilja dýrið eftir dautt eða limlest.“ Önundur segir að þegar tilkynning um ákeyrslu berist lögreglu sjái hún um aflífun dýrsins sé ekki um mjög langan veg að fara. Ella sé haft samband við bændur nærri slysstað og einhver þeirra beðinn um að annast aflífunina. Spurður hvort ekki sé hægt að stemma stigu við ákeyrslum á búfénað með girðingum meðfram þjóðveginum í umdæminu bendir Önundur á að þá þyrfti að girða þúsund kílómetra langa girðingu. Misjafnar skoðanir séu uppi á svo stórri framkvæmd. jss@frettabladid.is
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Fleiri fréttir Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Sjá meira