Þarf stærra átak en eftir bankahrunið 27. apríl 2010 03:30 Gjaldeyristekjur af ferðamönnum voru um 155 milljarðar króna á síðasta ári. Óttast er að eldgosið í Eyjafjallajökli hafi slæm áhrif á fjölda ferðamanna sem koma til Íslands í sumar.Fréttablaðið/Vilhelm
Miklu skiptir að fara strax af stað með markaðsátak til að koma í veg fyrir mikinn samdrátt í fjölda ferðamanna sem koma hingað til lands, segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Farið var í slíkt átak eftir bankahrunið haustið 2008, en Erna segir þörf á enn stærra átaki nú. Að því verði íslensk stjórnvöld að koma, ásamt hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu. Ómögulegt er að segja til um hversu mikill samdráttur í tekjum af komu ferðamanna verður vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, segir Erna. Gjaldeyristekjur af komu ferðamanna hingað til lands í fyrra voru um 155 milljarðar króna. Margir hafa þegar afpantað ferðir hingað til lands, en Erna segir þrátt fyrir allt ákveðin tækifæri í gosinu. Þegar stöðugleiki komist á flugferðir til og frá landinu sé ekkert því til fyrirstöðu að ferðaþjónustan komist á flug. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir þegar unnið að kynningaráætlun til að draga úr afbókunum. Hún segir að starfshópur hafi raunar verið starfandi frá því fljótlega eftir að gos hófst í Eyjafjallajökli til að reyna að koma réttum upplýsingum á framfæri við erlenda fjölmiðla. „Við erum líka að horfa inn á við. Það er verið að teikna upp sviðsmyndir svo við getum verið tilbúin við öllu í sumar. Ein sviðsmyndin er stórt gos, stærra eða sambærilegt en núverandi gos. Við viljum vita nákvæmlega til hvaða ráða skal gripið við slíkar aðstæður,“ segir Katrín. „Það er engin leið að segja til um á þessari stundu hvort eða hversu mikil fækkun verður á ferðamönnum hér í sumar,“ segir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri. „Þrátt fyrir að ástandið sé ekki gott í augnablikinu trúi ég því að okkur takist í sameiningu að tryggja að ferðaþjónustan beri ekki skaða af í sumar.“ Ólöf bendir á að eldgosið hafi vakið gríðarlega athygli og augu heimsins hafi beinst að Íslandi. Gosið gefi því líka tækifæri á því að kynna landið betur. Ótamið eðli landsins laði að sér ferðamenn, og svo lengi sem eldgos trufli ekki flugsamgöngur eigi áframhaldandi hraungos í Eyjafjallajökli ekki að þurfa að hafa slæm áhrif á komu ferðamanna hingað til lands. brjann@frettabladid.is klemens@frettabladid.is
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Fleiri fréttir MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Sjá meira