Ólafur Ragnar hélt ræðu um jarðhita á heimsþingi 26. apríl 2010 11:09 Ólafur Ragnar Grímsson er staddur í Indónesíu.
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flutti í morgun ræðu við setningu Heimsþings um jarðhita (World Geothermal Congress sem haldið er á Bali í Indónesíu en slík þing eru á fimm ára fresti samkvæmt tilkynningu frá forsetaembættinu. Susilo Bambang Yudhoyono forseti Indónesíu flutti einnig ræðu við setninguna en áður höfðu forsetarnir átt árangursríkan fund um samvinnu Íslands og Indónesíu þar sem einkum var lögð áhersla á jarðhita og framtíðarmöguleika hans á heimsvísu sem og samvinnu á sviði sjávarútvegs. Alþjóðasamtök um jarðhita (International Geothermal Association) buðu forseta Íslands að sækja þingið og flytja ræðu við setninguna. Þingið sækja um 2.500 sérfræðingar, vísindamenn, tæknifræðingar, verkfræðingar og forystumenn á sviði orkumála víða að úr veröldinni og í þeim hópi eru um 100 Íslendingar. Einnig sækja þingið hátt á annað hundrað sérfræðingar í jarðhita frá tugum þjóðlanda sem lokið hafa námi við Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Í tilkynningunni kemur fram að á fundi forseta Indónesíu og Íslands hafi verið rætt um hvernig íslensk tækniþekking getur gagnast við nýtingu hins gríðarmikla jarðhita sem finna má í Indónesíu. Forseti Indónesíu vísaði til árangurs Íslendinga á sviði jarðhitaframkvæmda, rannsókna, menntunar og þjálfunar. Þá var vikið að verkefnum í Indónesíu sem voru á dagskrá fundar forsetans með þáverandi iðnaðarráðherra, Össuri Skarphéðinssyni, þegar hann heimsótti Indónesíu fyrir þremur árum. Forseti Indónesíu lýsti einnig miklum áhuga á því að auka samvinnu við Íslendinga á sviði sjávarútvegs og að námsmenn frá landi hans gætu sótt í auknum mæli Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Þá voru forsetarnir sammála um að mikilvægt væri að jarðhiti yrði á komandi árum öflugur þáttur í aukinni nýtingu hreinnar orku á veraldarvísu. Fund forseta Íslands og Indónesíu sátu einnig utanríkisráðherra, viðskiptaráðherra og sjávarútvegsráðherra Indónesíu auk indónesískra embættismanna. Af Íslands hálfu sátu fundinn Guðni Jóhannesson orkumálastjóri, Ingvar Birgir Friðleifsson skólastjóri Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Benedikt Höskuldsson frá utanríkisráðuneytinu og Örnólfur Thorsson forsetaritari.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Segist saklaus Innlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Fleiri fréttir Ísraelum gangi illa ef ætlunin hafi verið að fremja þjóðarmorð Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Sjá meira