Innlent

Ógnaði pari með kúbeini og tók fartölvu

Ungt par var rænt fartölvu í Breiðholti um klukkan hálf eitt í nótt, eftir að ræninginn hótaði því með kúbeini.

Fólkið var að koma úr söluturni, að loknu uppgjöri, þegar þjófurinn veittist að því, og leikur grunur á að hann hafi verið að ásælast það, fremur en fartölvuna, en hann vann fólkinu ekki mein.

Hann er ófundinn, en fólkið telur hann ungan, grannvaxinn, um það bil einn og níutíu á hæð og var hann með græna lambúshettu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×