Innlent

Kókaínneysla dregst saman

Mynd: SÁÁ

Færri leita sér meðferðar vegna kókaínfíknar og telur starfsfólk á Vogi að þessi þróun haldi áfram út árið. Í ársskýrslu SÁÁ má sjá að marktækt dregur úr fjölda þeirra sem leituðu sér meðferðar árið 2009 vegna kókaínneyslu.

Nú liggja einnig fyrir tölur frá Rannsóknarstofu Háskólans í Lyfjafræði sem sýna sömu þróun. Sömuleiðis dregur verulega úr fjölda handlagðra sýna af kókaíni sem lögreglan sendi til rannsókna á síðasta ári. Því er ljóst að kókaínneysla er að dragast saman.

Kókaín er dýrasta fíkniefnið hér á landi og samkvæmt nýlegri könnun SÁÁ kostar grammið tæpar 16 þúsund krónur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×