Innlent

Foreldrar velja ódýrari skólaföt á börnin

Mynd: Anton Brink

Velta dagvöruverslana hefur ekki enn náð sér á strik eftir hrun bankanna þrátt fyrir að töluvert hafi dregið úr verðhækkunum á matvælum að undanförnu eins og verðmælingar Hagstofunnar sýna. Velta í dagvöruverslun minnkaði um 10,4% að raunvirði á þriggja ára tímabili frá ágúst 2007 til ágúst 2010.

Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar Rannsóknaseturs verslunarinnar.

Í ágúst minnkaði sala í öllum tegunum verslunar að raunvirði miðað sama mánuð í fyrra nema í raftækjaverslun. Eftirtektavert er að fataverslun dróst saman í ágúst um 16,2%. Fatakaupmenn benda á að foreldrar virðast velja ódýrari skólaföt á börn sín nú en áður. Þá er líklegt að skólaföt séu ekki endilega keypt við upphaf skólaársins heldur nýti foreldrar og skólafólk sér útsölur þegar þær standa yfir. Húsgagnaverslun er enn í mikilli lægð og hefur minnkað um 57,5% frá því í ágúst 2007.

Ytri skilyrði fyrir verslun ættu þó að fara batnandi með styrkingu krónunnar, lækkandi vöxtum og auknum kaupmætti almennings. Kaupmáttur launa mældist 1,1% meiri í júlí síðastliðnum miðað við sama mánuði í fyrra og hefur farið vaxandi tvo mánuði í röð.

Sjá nánar í tilkynningu frá Rannsóknarsetrinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×