Innlent

Auka stuðning við fólk með ólæknandi sjúkdóma

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þjónustumiðstöð TR hrindir af stað nýju verkefni næsta vor.
Þjónustumiðstöð TR hrindir af stað nýju verkefni næsta vor.
Þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar ætlar að hrinda af stað tilraunaverkefni sem felst í sérþjónustu fyrir fólk með ólæknandi og lífsógnandi sjúkdóma. Markmið verkefnisins er að hverjum þeim sem glímir við slíka sjúkdóma bjóðist aðstoð sérhæfðs þjónusturáðgjafa við að nálgast réttindi sín innan kerfisins. Verkefnið er ætlað krabbameinssjúklingum og MND sjúklingum og mun þjónustan felast í viðtali við sérþjálfaðan ráðgjafa.

Hugmyndin að þjónustunni er byggð á meistaraverkefni frá árinu 2007. Niðurstöðurnar benda til að fólki í þessari stöðu finnist erfitt að leita réttar síns í völundarhúsi hins opinbera kerfis, hafi þungbærar fjárhagsáhyggjur og gangi illa að láta enda ná saman á bótum. Þannig fari dýrmætur tími og orka í glímu við kerfið, eins og segir í fréttatilkynningu sem send var út vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×