Innlent

Gangnamaður kom í leitirnar

Gangnamaður, sem björgunarsveitamenn höfðu leitað að á milli Skagafjarðar og Húnaflóa síðan í gærmorgun, komst að sjálfsdáðum að bænum Ketu á Skaga um klukkan tíu í gærkvöldi og knúði þar dyra.

Hann var þá orðinn kaldur og hrakinn, enda hafði hann gengið tugi kílómetra í rigningu og kalsa veðri. Að öðru leiti amaði ekkert að honum. Maðurinn missti frá sér hestinn við smalamennsku í gærmorgun, en síðan rofanði samband við hann.

Í gærkvöldi var þyrla Landhelgisgæslunnar send á svæðið með þrjá leitarhunda, en maðurinn kom fram skömmu síðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×