Innlent

Kínverski forsætisráðherrann vill heimsækja Íslendinga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, hefur áhuga á að koma til Íslands. Mynd/ afp.
Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, hefur áhuga á að koma til Íslands. Mynd/ afp.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði í morgun með forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao.

Eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu ítrekaði kínverski forsætisráðherrann á fundinum að kínversk stjórnvöld hefðu ákveðið að styðja Ísland sérstaklega á tímum efnahagslegra erfiðleika og væri gjaldeyrisskiptasamningurinn milli Seðlabanka Kína og Seðlabanka Íslands sem undirritaður var í sumar mikilvægur hornsteinn slíks samstarfs. Kínverjar myndu leggja kapp á aukinn innflutning á íslenskum vörum og víðtækt samstarf við íslensk verkfræðifyrirtæki og orkufyrirtæki sem stuðla myndi að aukinni þátttöku þeirra í jarðhitavæðingu Kína.

Þá sagðist kínverski forsætisráðherrann hafa áhuga á að heimsækja Ísland. Hann sagði jafnframt að eldgosið í Eyjafjallajökli hefði vakið gríðarlegan áhuga á Íslandi í Kína og á næstunni myndi fjölga mjög kínverskum ferðamönnum á Íslandi.

Þá sagði kínverski forsætisráðherrann að á næsta ári yrðu 40 ár liðin frá því að löndin tóku upp stjórnmálasamband og þess bæri að minnast með fjölþættri dagskrá, ráðstefnum og vísindaþingum þar sem meðal annars yrði fjallað um jarðhita, jöklarannsókna, jarðskjálfta og framtíðar norðurslóða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×