Tobba Marinós og Yrsa keppa í Útsvari 9. september 2010 08:45 Þorbjörg Marinósdóttir verður í liði Kópavogsbæjar í spurningaþættinum Útsvari á RÚV. Yrsa Sigurðardóttir keppir fyrir Seltjarnarnes og Vilhjálmur Bjarnason fyrir Garðabæ.
Fjölmiðlakonan og rithöfundurinn Þorbjörg Marinósdóttir hefur staðfest þátttöku sína í Útsvari, spurningaþætti milli sveitarfélaga sem er að hefja göngu sína fjórða árið í röð í Ríkisjónvarpinu. Þorbjörg, eða Tobba Marinós eins og hún er gjarnan kölluð, keppir fyrir hönd sveitarfélags síns, Kópavogs, í spurningaleiknum sívinsæla og mun eflaust reynast liðsstyrkur fyrir sitt lið enda með puttana á púlsinum á flestu sem er að gerast í samfélaginu í dag. Aðstandendur Útsvars eru þessa dagana að leggja lokahönd á liðaskipan í þáttunum og eiga áhorfendur eftir að sjá nokkur ný og óþekkt andlit berjast sín á milli í vetur. Til að mynda verða tvær konur í liði Ísafjarðarbæjar en það er víst erfiðara að fá konur til að taka þátt í spurningaþættinum en karlpeninginn og er mikil ánægju með það hjá RÚV hversu margar konur taka þátt að þessu sinni. Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur ætlar að taka þátt í fyrsta sinn fyrir hönd Seltjarnarness og Kolfinna Baldvinsdóttir ætlar einnig að spreyta sig á skjánum. Vilhjálmur Bjarnasson og Svanhildur Hólm ætla að taka upp forna frægð og keppa aftur fyrir hönd Garðabæjar og Reykjavíkur þetta árið en þau mættust einmitt í úrslitum í fyrra þar sem lið Garðabæjar undir forystu Vilhjáms fór með sigur af hólmi. - áp Seltjarnanes Yrsa Sigurðarsdóttir er nýtt andlit á skjánum.
Mest lesið Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Lífið Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Lífið samstarf Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum Lífið samstarf Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Fleiri fréttir Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Sjá meira