Innlent

Áfram óeðlileg tengsl milli viðskipta og stjórnmála

Þingmenn Hreyfingarinnar segja málsmeðferð tortryggilega
Þingmenn Hreyfingarinnar segja málsmeðferð tortryggilega Mynd: Vilhelm Gunnarsson
„Nýsamþykkt lög gera hvorki ráð fyrir að rofin verði óeðlileg tengsl á milli viðskipta og stjórnmála né að jafnræðis verði gætt við úthlutun opinberra fjármuna. Stjórnmálasamtök og stjórnmálamenn munu áfram geta tekið við peningum frá fyrirtækjum. Þá verður flokkum og flokksmönnum heimilt að taka við peningum frá einstaklingum án þess að upplýst verði í öllum tilfellum um viðkomandi styrkveitendur."

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem þingmenn Hreyfingarinnar sendu frá sér af því tilefni að Alþingi hefur samþykkt lög um fjármál stjórnmálaflokka. Þingmenn allra flokka, utan Hreyfingarinnar, lögðu fram frumvarpið sem varð að lögum í dag.

Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, telja að sú málsmeðferð sem viðhöfð var við afgreiðslu málsins hafi verið í meira lagi tortryggileg. „Sú málsmeðferð sem viðhöfð hefur verið við afgreiðslu málsins er í meira lagi tortryggileg. Ekki fékk málið efnislega umfjöllun í allsherjarnefnd og beiðni um að gestir kæmu fyrir nefndina til að veita málinu umsögn var hafnað þó hefð sé fyrir slíku við afgreiðslu þingmála. Svo virðist sem þingmönnum hafi legið á að afgreiða málið áður en þingmannanefnd sú sem ætlað er að móta tillögur að viðbrögðum Alþingis við niðurstöðum skýrslu rannsóknarnefndarinnar hafi skilað af sér."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×