Innlent

Styðja við bakið á Stjörnunni og Reykjadal

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhannes Jónsson er stofnandi Bónuss, sem ætlar að styrkja Stjörnuna og Reykjadal á morgun í tilefni af opnun nýju verslunarinnar.
Jóhannes Jónsson er stofnandi Bónuss, sem ætlar að styrkja Stjörnuna og Reykjadal á morgun í tilefni af opnun nýju verslunarinnar.
Bónus ætlar að styrkja Stjörnuna um 1,5 milljónir króna og sumarbúðirnar í Reykjadal um eina milljón króna. Ákvörðun um stuðninginn er tekin í tilefni af því að ný og stærri Bónusverslun er að opna í Kauptúni í Garðabæ á morgun.

Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónusverslananna, segir í samtali við Vísi að ákvörðunin um opnun verslunarinnar hafi verið tekin fyrir hrun. Því megi segja að um nokkurskonar 2007 ákvörðun hafi verið að ræða. Hann segir hins vegar að mörg tæki úr eldri versluninni nýtist í þerri nýju. Því verði kostnaðurinn kannski ekki eins mikill og ætla mætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×