Innlent

Flugfélag Íslands kærir hugsanlega aðgerðir slökkviliðsmanna

Karen Kjartansdóttir skrifar
Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands íhugar að kæra aðgerðir slökkviliðsmanna. Hann segir tjón félagsins vegna aðgerðanna nema milljónum og harmar að þeir láti kjaradeiluna bitna á ferðafólki og fyrirtæki sem enga aðild eigi að kjaradeilunni.

Árangurslausum samningafundi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna með samninganefnd sveitarfélaga lauk hjá ríkissáttasemjara um klukkan sex í morgun. Annar fundur hefur ekki verið ákveðinn. Klukkan átta hófst því sextán klukkustunda verkfallsaðgerð slökkviliðsmanna.

Vegna verkfallsins ætlaði Flugfélag Íslands að nota Húsavíkurflugvöll í staðinn fyrir Akureyrarflugvöll eins og gert hefur verið í síðustu verkfallsaðgerðum. En í þetta sinn neituðu Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn að sætta sig við þá tilhögun.

Nokkrir verkfallsverðir fóru norður í því skyni að koma í veg fyrir Húasvíkurflugið, en á Reykjarvíkurflugvelli stöfnuðust tugir slökkviliðsmann aeinnig saman og hindruðu för ferðalanga.

Fyrst reyndi flugfélagið að koma farþegum út um hlið eitt en það tóku slökkviliðsmenn ekki í mál. Þá var reynt að koma þeim út um hlið þrjú en án árangurs. Einhverjir farþeganna urðu reiðir vegna aðgerðanna og vildu krefja slökkviliðsmenn um endurgreiðslu.

Þegar haft var samband við samgönguráðuneytið og spurt hvort til stæði að setja lög á slökkviliðsmenn fengust þau svör að það hefði ekki verið tekið til umræðu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×