Í tísku að fjarlægja svitakirtla úr holhönd 13. ágúst 2010 06:00 læknar
Ný tækni í lýtalækningum hefur gert það að verkum að aðgerðir í handarkrikum vegna of mikillar svitamyndunar hafa færst í vöxt. Guðmundur Már Stefánsson, lýtalæknir hjá Domus Medica, segir að gerðar séu um fimm slíkar aðgerðir í mánuði og kosti á bilinu 100 til 150 þúsund krónur. „Nýja tæknin gerir það að verkum að það myndast ekki ör í handar-krikanum eins og áður og í því liggur þessi tískubylgja,“ segir Guðmundur. Aðgerðin er framkvæmd með skafsogi. Megnið af svitakirtlum undir höndunum er eyðilagt sem gerir það að verkum að svitamyndun minnkar til muna. Lítið gat er gert á húðina og farið er með lítið tæki þar inn undir sem eyðileggur á milli 70 og 80 prósent kirtlanna. Upphaflega var aðgerðin framkvæmd á þann veg að stór hluti af húðinni undir höndunum var skorinn burt. Jaðrarnir voru síðan losaðir upp, færðir til og saumaðir saman. „En því fylgir ör eftir holhöndinni endilangri og eru margar konur ekki hrifnar af því,“ segir Ólafur Einarsson, annar lýtalæknir hjá Domus Medica. „En það er skárra en að vera alltaf lyktandi.“ Ólafur segir marga hafa þurft að líða fyrir of mikla svitamyndun árum saman og það sé algjör óþarfi. Vandamálið sé ekki síður hjá körlum en konum. „Ég man sérstaklega eftir einum lögreglumanni sem var búinn að eyðileggja nokkra einkennisbúninga með svita og leið mikið fyrir. Hann fór svo í þessa aðgerð og eyðilagði ekki fleiri lögreglubúninga eftir það.“ Baldur Tumi Baldursson, húðsjúkdómalæknir á Landspítalanum, segir aðgerðina tiltölulega hættulausa og oft á tíðum virka mjög vel fyrir þá sem þjást af of mikilli svitamyndun undir höndum. Hann segir brottnám svitakirtla ekki orsaka aukna svitamyndun annars staðar á líkamanum. Þó telur hann að Botox-sprautur séu notaðar undir hendurnar í fleiri tilfellum heldur en aðgerðirnar, en slíkt minnkar einnig svitamyndun. Þó þarf að endurtaka Botox-meðferðina með hálfs árs millibili. Um tuttugu prósent þeirra sem fara í svitakirtlaaðgerð með skaf-sogi þurfa að koma aftur í aðgerð og í einstaka tilvikum þarf að framkvæma aðgerðina þrisvar. sunna@frettabladid.is
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira