Segir lækna ekki vera neitt hátekjufólk Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. júlí 2010 21:00 Læknir að störfum. Hjörtur Haraldsson þvertekur fyrir það að útttekt tekjublaðana lýsi raunveruleika lækna. Mynd/ afp.
Laun lækna sem birtust í tekjublaði Frjálsrar verslunar lýsa engan veginn raunveruleikanum hjá almennum læknum, að mati þeirra sem aðild eiga að Félagi almennra lækna. Vísir sagði frá því í gær að samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar voru 110 læknar með yfir milljón á mánuði í tekjur á síðasta ári. „Það er satt að sérfræðingar eru með hærri heildarlaun heldur en meðalverkamaðurinn en það er margt sem er inni í laununum, bæði hjá sérfræðingum og almennum læknum," segir Hjörtur Haraldsson, kandídat í Félagi almennra lækna. Hann bendir á að bæði mikil menntun og vinna liggi að baki þeim tekjum sem læknar hafi. Engu að síður séu grunnlaun nýútskrifaðs kandídats, eftir sex ára háskólanám, um 303 þúsund krónur. „Grunnlaunin sjálf hækka alls ekki svo mikið næstu ár á eftir þrátt fyrir þó nokkra sérhæfingu og vinnu sem að baki liggur," segir Hjörtur. Hjörtur bendir á að á meðan grunnlaunum sé haldið lágum sé reynt að halda yfirvinnulaunum háum í staðinn. „Það er kannski mögulegt að túlka þetta þannig að þetta hvetji til yfirvinnu og það eru kostir og gallar við það," segir Hjörtur, en ítrekar að sú staðreynd að 110 læknar séu með yfir milljón á mánuði varpi alls ekki réttu ljósi á stéttina. „Fólk á þessum lista er að öllum líkindum læknar sem eru í heilsugæslu út á landi, sem vinna sólarhringsvaktir marga daga í einu. Ég veit til dæmis að á Borgarnesi var læknir á sólarhringsvakt margar vikur vegna þess að það var enginn til að leysa af og þá náttúrlega safnast þetta upp," segir Hjörtur. Hjörtur segir að margir unglæknar séu að sinna fjölskyldum sínum á grunnlaunum og því sé ekki rétt að útmála þá sem hátekjufólk.
Tengdar fréttir Landflótta læknar með milljónir á mánuði. Sigurður Böðvarsson krabbameinslæknir var með rúmar 962 þúsund krónur í laun á mánuði í fyrra samkvæmt tekjublaði Mannlífs sem kom út í morgun. 29. júlí 2010 11:20 Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Fleiri fréttir Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Sjá meira
Landflótta læknar með milljónir á mánuði. Sigurður Böðvarsson krabbameinslæknir var með rúmar 962 þúsund krónur í laun á mánuði í fyrra samkvæmt tekjublaði Mannlífs sem kom út í morgun. 29. júlí 2010 11:20