Búist við metfjölda á Þjóðhátíð 30. júlí 2010 04:00 Búist er við því að margir landsmenn leggi af stað út á þjóðvegi landsins um helgina til þess að njóta sveitasælunnar með fjölskyldu og vinum. Umferðarstofa ítrekar við ökumenn að sýna aðgát og þolinmæði í umferðinni.fréttablaðið/daníel
Stærsta ferðamannahelgi ársins er gengin í garð. Búist er við að Þjóðhátíð í Eyjum verði sú fjölmennasta til þessa. Umferðarstofa biður ökumenn að sýna tillitsemi og aðgát. Veðurspáin fyrir landið er hin besta. Búist er við því að Þjóðhátíð Vestmannaeyinga um helgina verði sú fjölmennasta í manna minnum og er hún haldin í 130. sinn í ár. Eins og kunnugt er var hin nýja Landeyjahöfn vígð nú á dögunum og ferð Herjólfs milli lands og Eyja styttist um tæpa tvo klukkutíma en ferjan siglir sex til átta ferðir á sólarhring yfir verslunarmannahelgina. Uppselt er í Herjólf frá föstudegi til mánudags og öll flug til og frá Eyjum uppbókuð. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir viðbúnað í Herjólfsdal hafa verið aukinn til muna fyrir helgina og menn séu að búa sig undir stærstu Þjóðhátíð til þessa. „Við höfum verið að undirbúa þessa hátíð frá því að við slitum þeirri síðustu," segir Elliði. „Það lá mjög snemma fyrir að það stefndi í stóra hátíð, fyrst og fremst vegna þess hversu góð sú síðasta var og þess vegna hefur allur aðbúnaður og þjónusta við gesti verið stóraukið." Fjölskylduskemmtanir eru áberandi í ár, en þær er meðal annars að finna á Stokkseyri, Akureyri, í Stykkishólmi og Borgarnesi. Veðurspáin fyrir helgina er svipuð fyrir allt landið og lítur út fyrir að hitinn verði á bilinu 12-17 stig á landinu, en svo virðist sem hlýjast verði á Suður- og Vesturlandi. Verslunarmannahelgi er haldin hátíðleg á undan frídegi verslunarmanna, fyrsta mánudegi ágústmánaðar hvers árs. Frídeginum var komið á af Verslunarmannafélagi Reykjavíkur og var í fyrsta sinn haldinn hátíðlegur í Reykjavík þann 13. september árið 1894. Dagurinn var síðar færður fram í byrjun ágúst. Hefur helgin á undan frídegi verslunarmanna ávallt verið mikil ferðahelgi og hefur skapast hefð fyrir mörgum árlegum viðburðum eins og finna má á landinu öllu um helgina. sunna@frettabladid.is
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira