Slökkviliðsmenn á Akureyri telja kjarasamning brotinn 30. júlí 2010 06:00 Akureyrarbær greiðir ekki frítökurétt.
Slökkviliðsmenn á Akureyri fá ekki greiddan frítökurétt né fá að taka hann út í fríum. Slíkt er brot á kjarasamningum og lögum frá árinu 1997, samkvæmt framkvæmdastjóra Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSOS). Ítrekað hefur verið reynt að semja við bæinn að hálfu slökkviliðsmanna en ekkert þokast í málinu. Samkvæmt lögum á frítökuréttur að koma fram á launaseðlum starfsmanna en það hefur til þessa aldrei gerst. Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri LSOS, segir Akureyrarbæ tvímælalaust bæði vera að brjóta lög og kjarasamninga . „Þetta er eina sveitarfélagi,að því er ég best veit, þar sem þetta viðgengst," segir Valdimar. „Bærinn neitar algjörlega að greiða frítökuréttinn eða gefa mönnum það leyfi sem þeir eiga rétt á samkvæmt kjarasamningum. Þessi réttur fyrnist aldrei samkvæmt lögum þannig að það er í raun hægt að rukka hann inn hvenær sem er, en menn voru vissulega að vonast eftir því að þetta yrði gert að frumkvæði sveitarfélagsins." Þorbjörn Haraldsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, segir málið vera byggt á misskilningi og samstarfið við Akureyrarbæ sé mjög gott. „Það er langt í frá að eitthvað bjáti þar á," segir hann. „Menn eru að fá allan frítökuréttinn sinn í formi fría og það kemur fram á launaseðlum." Ólafur Stefánsson, slökkviliðsmaður og trúnaðarmaður slökkviliðsmanna á Akureyri, segir að menn hafi aldrei fengið frítökurétt og málið sé hið alvarlegasta. „Það er búið að vera mikið karp um þetta undanfarin ár. Menn hafa verið hræddir við að fara í hart en nú á síðustu þremur árum hafa allir verið sammála um að vilja fá réttinn inn," segir hann. „Við höfum aldrei fengið þetta - hvorki greitt í launum né fríum." Ólafur átti fund með starfsmannastjóra Akureyrarbæjar, Höllu Margréti Tryggvadóttur, í maí 2009. Ólafur segir að sátt hafi náðst á fundinum og ákveðið hafi verið að ganga í málið, en ekkert hefur verið að gert, þrátt fyrir ítrekanir. Halla Margrét segir málið koma sér mikið á óvart og að hún hafi ekki fengið neinar ítrekanir varðandi málið. „Ég er ekki með eitt einasta svona mál á borðinu hjá mér," segir hún. Spurð hvort slökkviliðsmenn á Akureyri séu að fá frítökurétt sinn eður ei, segist Halla ekki hafa næg gögn hjá sér til að geta staðfest það. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Fleiri fréttir Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Sjá meira