Innlent

Ungt par með barn í bílnum tekið undir áhrifum fíkniefna

Ungt par, sem var stöðvað á bíl sínum við eftirlit lögreglunnar í Borgarnesi í gærkvöldi, reyndist undir áhrifum fíkniefna og fundust auk þess fíkniefni á karlmanninum. Með í för var lítið barn þeirra og ætlaði fólkið í langferð.

Annað fíkniefnamál kom upp hjá lögreglunni í Borgarnesi í nótt, en ekki fengust nánari upplýsingar um það vegna anna hjá lögreglunni við að greiða úr því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×