Stöð 2 braut ekki gegn útvarpslögum Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. júlí 2010 16:00 Frambjóðendur til síðustu borgarstjórnarkosninga. Mynd/ Anton.
Fyrirkomulag kosningasjónvarps Stöðvar 2 daginn fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar fól ekki í sér mismunun samkvæmt útvarpslögum. Þetta er niðurstaða útvarpsréttarnefndar sem hefur fjallað um kæru þess efnis. Fyrirkomulag kosningasjónvarps Stöðvar 2 var þannig að oddvitum þeirra fimm flokka sem mældust með mest fylgi í skoðanakönnunum í aðdraganda kosninga var boðið að taka þátt í umræðum í sjónvarpsþætti á Stöð 2. Fulltrúum þriggja annarra framboða var hins vegar boðið að tjá skoðanir sínar í stuttum viðtölum. Þessu vildu fulltrúar Reykjavíkurframboðsins ekki una og kærðu því til útvarpsréttarnefndar. Í greinagerð útvarpsréttarnefndar segir að sjónvarpsstöðvum sé heimilt innan eðlilegra marka að taka tillit til þess hvaða hljómgrunn framboð hafa fengið og sé í þeim efnum meðal annars rétt að hafa til hliðsjónar skoðanakannanir í aðdraganda kosninga. Að öðrum kosti sé viðbúið að mikill fjöldi framboða, með litla raunhæfa möguleika á að komast til áhrifa, taki drjúgan hluta af útsendingartíma og hamli þannig að kjósendum gefist viðhlítandi tækifæri á að kynna sér stefnumál þeirra framboða sem líklegast sé að nái nægjanlegum fjölda atkvæða til að koma að fulltrúa í borgarstjórn. Útvarpsréttarnefnd segir að þegar þess sé gætt að mat Stöðvar 2 á því hvaða framboð hefðu fengið hljómgrunn hafi verið málefnalegt verði ekki talið að fyrirkomulag kosningasjónvarpsins hafi farið í bága við 9. grein útvarpslaga. Sé þá jafnframt haft í huga að öllum framboðum hafi verið gert kleift að kynna stefnumál sín.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira