Innlent

Hundruð hafa ekki rétt á atvinnustyrk

Um 500 manns í Reykjavík þiggja bætur frá Reykjavíkurborg þar sem þeir hafa ekki bótarétt hjá Vinnumálastofnun
Um 500 manns í Reykjavík þiggja bætur frá Reykjavíkurborg þar sem þeir hafa ekki bótarétt hjá Vinnumálastofnun
Um 500 manns í Reykjavík þiggja bætur frá Reykjavíkurborg þar sem þeir hafa ekki bótarétt hjá Vinnumálastofnun. Þetta á til dæmis við um þá sem hafa dvalið lengi erlendis. Þeir standa verr að vígi þegar kemur að umsóknum um atvinnu, þar sem atvinnurekandi getur ekki fengið styrk með þeim úr Atvinnuleysistryggingarsjóði.

Ástæðan er sú að styrkurinn er greiddur frá ríkinu, en sveitarfélög greiða ekki sams konar styrk. Vinnuveitandinn fær ígildi atvinnuleysisbóta greitt frá Vinnumálastofnun, eða um 150 þúsund krónur og sparar sér þannig umtalsverðan launakostnað.

Fréttablaðið veit um tilvik þar sem maður hafði fengið vilyrði fyrir vinnu, en atvinnurekandinn hætti við að ráða hann þegar hann komst að því að maðurinn ætti ekki rétt á atvinnuleysisbótum og því fengi vinnuveitandinn ekki atvinnustyrkinn.

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að ekkert banni sveitarfélögum að greiða sams konar styrk með atvinnulausum, til að auka líkurnar á að þeir verði ráðnir. Sveitarfélögin hafa hins vegar í sumum tilvikum þegið styrkinn, þegar þau hafa ráðið til sín fólk af atvinnuleysisskrá.

„Fyrstu sex mánuði ársins hefur Vinnumálastofnun greitt til fyrirtækja, sveitarfélaga, stofnana og félagasamtaka rúmar 239 milljónir króna vegna starfsþjálfunar og átaksverkefna. Það þýðir að í hverjum mánuði hafa verið um 360 einstaklingar við störf með þessum formerkjum," segir Gissur.

Þetta á aðeins við um atvinnuleitendur með bótarétt úr sjóðnum, sumarátak fyrir námsmenn og atvinnuleitendur stendur utan við þessar tölur.

Fólk sem ekki hefur rétt á atvinnuleysisbótum þarf að sækja bætur til félagsmálayfirvalda í viðkomandi sveitarfélagi. Hjá Reykjavíkurborg fengust þær upplýsingar að 1. maí hefðu 487 Reykvíkingar, án réttar til atvinnuleysisbóta, þegið bætur hjá sveitarfélaginu. Að auki þáðu 208 með rétt á atvinnuleysisbótum bætur frá sveitarfélaginu. Alls þáðu 1.159 bætur frá borginni 1. maí. Fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg verður mest 125.540 krónur á mánuði.

Ekki náðist í Björk Vilhelmsdóttur, formann velferðarráðs Reykjavíkur, við vinnslu fréttarinnar.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×