Innlent

Fjöldi fólks hefur aðeins 50 þúsund á mánuði til ráðstöfunar

Fjölmenni sótti borgarafund baráttusamtakanna Bótar, sem haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur í gærkvöldi, en samtökin berjast gegn fátækt í landinu.

Þar kom fram að fjöldi fólks hefði aðeins um það bil 50 þúsund krónur til ráðstöfunar á mánuði, þegar öll gjöld hefðu verið greidd.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ sagði að rík áhersla yrði lögð á að bæta kjör hinna lægst launuðu í komandi kjarasamningum og að tryggingabætur yrðu ekki skertar frekar.

Ögmundur Jónasson ráðherra dóms- og mannréttindamála var meðal fundargesta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×