Íslendingar verða hugsanlega 437 þúsund talsins Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. júlí 2010 09:00 Gert er ráð fyrir að Íslendingum fjölgi verulega. Mynd/ Anton.
Íslendingar verða tæplega 437 þúsund talsins hinn 1. janúar 2060 miðað við mannfjöldaspá Hagstofu Íslands en eru nú tæplega 318 þúsund talsins. Hagstofan gaf út mannfjöldaspá í morgun. Að þessu sinni eru gerð þrjú afbrigði, svokölluð lágspá, miðspá og háspá. Afbrigðin miðast við ólíkar forsendur um fjölda barna á ævi hverrar konu og búferlaflutninga. Talan 437 þúsund miðast við svokallaða miðspá. Í lágspánni verða íbúar 386.500 í lok spátímabilsins en 493.800 samkvæmt háspánni. Hagstofan gerir ráð fyrir áframhaldandi fólksfækkun á yfirstandandi ári, en að frá og með árinu 2011 muni fólki fjölga á landinu þrátt fyrir neikvæðan flutningsjöfnuð á því ári og hinu næsta. Í miðspá og háspá er gert ráð fyrir náttúrlegri fólksfjölgun út spátímabilið. Með náttúrlegri fólksfjölgun er átt við fleiri fædda en dána. Samkvæmt lágspánni verða dánir hins vegar fleiri en fæddir frá og með árinu 2052. Þá yrði fjölgun íbúa eingöngu rakin til jákvæðs flutningsjafnaðar. Meðalævi mun halda áfram að lengjast bæði hjá körlum og konum. Karlar geta vænst þess að verða 79,7 ára nú en meðalævilengd þeirra verður 85 ár í lok spátímabilsins. Konur geta vænst þess að verða 83,3 ára en spáð er að sá aldur verði kominn í 87,1 ár í lok spátímabilsins.
Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Erlent Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent Fleiri fréttir Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Sjá meira