Enginn beitti sér óeðlilega í Magma-málinu Boði Logason skrifar 13. júlí 2010 13:50 Unnur G. Kristjánsdóttir
Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður í nefnd um erlenda fjárfestingu segir að samskipti sín og nefndarinnar við Efnahags- og viðskiptaráuneytið varðandi svokallað Magma-mál, hafi verið í góðum og eðlilegum farvegi. Enginn hafi beitt sér óeðlilega í málinu né reynt að hafa áhrif á niðurstöðu nefndarinnar, þvert á móti hafi nefndin notið velvildar í ráðuneytinu. Í yfirlýsingu sem hún hefur sent fjölmiðlum segir: „Vegna ummæla Silju Báru Ómarsdóttur fulltrúa VG í nefnd um erlenda fjárfestingu um samskipti okkar við starfsmenn Efnahags- og viðskiptaráðuneytisins skal tekið fram að samskipti milli mín og nefndarinnar í heild við starfsmenn ráðuneytisins hafa verið í góðum og eðlilegum farvegi. Sannarlega hefur mér heyrst að einhverjir starfsmenn og hún hafa ekki verið sammála í einhverjum efnum en tel það ekki hafa nein áhrif á Magma-málið Sá háttur er hafður á starfsemi nefndarinnar að ráðuneytið er aðsetur nefndarinnar og þar höfum við aðgang að sérstökum starfsmanni sem jafnframt er starfsmaður ráðuneytisins. JNefndin getur óskað eftir upplýsingum og ráðgjöf frá starfsmönnum ráðuneytisins. Nefnd um erlenda fjárfestingu starfar fjárhagslega á vegum Efnahags- og viðskiptaráðuneytisins og heldur fundi þar. Haft var samráð við ráðuneytið um til hvaða sérfræðinga var leitað til starfa fyrir nefndina en nefndin eða formaður bera ábyrgð á hverjir voru valdir. Sérfræðingar þeir sem veittu álit og ráðgjöf eru Dóra Guðmundsdóttir hjá Lagastofnun HÍ, Kristín Haraldsdóttir hjá Auðlindastofnun HR og Dóra Sif Tynes sérfræðingur í Evrópurétti. Enginn starfsmaður ráðuneytisins hefur beitt sér óeðlilega Magma-málinu né reynt að hafa áhrif á niðurstöðu nefndarinnar, þvert á móti hefur nefndin notið velvildar í ráðuneytinu. Í tilefni af ofanrituðu og ummæla Atla Gíslason þingmaður VG í hádegisfréttum RÚV að það samstarf okkar við ráðuneytið væri of náið og eitthvað óeðlilegt vari í gangi vil ég taka fram að svo er ekki."
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Fleiri fréttir Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Sjá meira