Fleiri skurðaðgerðir án innlagna 11. september 2010 11:00 Mynd/Haraldur Jónasson
Komum á dagskurðdeildir á Landspítala hefur fjölgað um 170 prósent á fyrstu átta mánuðum ársins 2010 miðað við árið áður. Skurðaðgerðir eru nú í vaxandi mæli gerðar án innlagna. Þetta segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í pistli á heimasíðu spítlans. Þar kemur fram að starfsemi dagskurðdeilda Landspítalans hefur aukist mjög á árinu 2010 en það er í takt við áætlun spítalans um að færa þjónustu frá legudeildum til dag- og göngudeilda. „Alls hefur komum á dagskurðdeildir fjölgað um meira en 170% á fyrstu átta mánuðum ársins. Fjölgunin er annars vegar vegna þess að skurðaðgerðir eru nú í vaxandi mæli gerðar án innlagnar en einnig hefur ýmis þjónusta við hvern sjúkling, sem áður fór fram á legudeildum, færst yfir á dagdeildir," segir Björn. Mynd/Pjetur Í næstu vika verða birtar svokallaðar starfsemistölur fyrir fyrstu átta mánuði ársins. „Þar er að vænta fleiri athyglisverðra talna um starfsemi á háskólasjúkrahúsinu á þessu tímabili. Nokkur samdráttur hefur orðið í starfseminni í heild en eins og ég hef áður nefnt eru líka færri hendur sem vinna verkin," segir Björn. Þá segir Björn: „Komum á allar bráðamóttökur spítalans hefur fækkað um 4,2% þótt komum hafi fjölgað verulega á bráðamóttökuna í Fossvogi. Fækkunina má m.a. rekja til breytts verklags og skráningar á bráðamóttökum geð- og kvennadeilda. Á bráðamóttöku barna hefur komum fækkað um því sem næst 12%. Við höldum áfram að ná þeim markmiðum okkar að fækka rannsóknum og er fækkunin tæplega 19%."
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Fleiri fréttir Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sjá meira