Bara sumir eigenda fengu tjón sitt bætt 11. september 2010 03:15 Talsmaður Toyota á Íslandi segir að meta verði hvert tilfelli bilana fyrir sig.
Fjölmörg dæmi um meintan galla í spíssum Land Cruiser 120 bifreiða hafa komið inn á borð Fréttablaðsins í kjölfar umfjöllunar blaðsins síðustu tvo daga. Borið hefur á bilun í bílum af þessari tegund, sem eru um fjögur þúsund talsins hér á landi. Meintur galli í spíssum leiðir til þess að grófsíur eiga til að stíflast, bílarnir ofhitna og hafa í nokkrum tilvikum brætt úr sér. Toyota á Íslandi hefur neitað því að um þekktan galla sé að ræða. Heimildir Fréttablaðsins herma þó að þessi tilvik séu algeng. Þá er keimlík dæmi að finna erlendis, sérstaklega þar sem kaldara er í veðri, enda munu spíssarnir ekki hannaðir fyrir mikinn kulda. Daníel Pálsson, sem rekur Smurstöðina að Fosshálsi 1 og þjónustar Toyota-bíla, segist þekkja fleiri dæmi um þessar bilanir og þær næmu einhverjum tugum. Toyota viti af málinu og hafi beðið þjónustuverkstæði um að hafa auga með einkennum. „Okkur, sem þjónustum þessa bíla, er uppálagt að ef við sjáum eitthvað svart í grófsíum þegar við töppum af þeim, sendum við þá upp eftir [til Toyota].“ Hann segist þekkja nýlegt dæmi um að bíll hafi brætt úr sér af þessum sökum. „Við lentum í því að einn af viðskiptavinum okkar, sem hafði alltaf verið hjá okkur í smurningu, hringdi í mig ofan af fjöllum þar sem bíllinn hafði brætt úr sér,“ segir Daníel. Viðkomandi var sendur til Toyota á Íslandi, sem skiptu um vél á eigin kostnað, sem gæti numið á milli 2 og 3 milljónum króna. Daníel bætir því við að Toyota hafi í það skiptið staðið sig vel og jafnvel útvegað annan bíl meðan á viðgerð stóð. Fréttablaðinu hafa borist margar ábendingar um bilanir sem tengja má við meintan galla í spíssum og ber ekki öllum saman um viðbrögð Toyota. Sumir fá skipt um hlutina sér að kostnaðarlausu á meðan aðrir sitja uppi með háan reikning. Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi, segir málið liggja í því hvort bílar séu í ábyrgð eða ekki. „En við skoðum hluti alltaf þegar þeir koma upp. Við skellum aldrei í lás og verðum að skoða hvert tilfelli fyrir sig og vega það og meta.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira