Best í myrkraherberginu 4. febrúar 2010 06:30 Ein mynda Jónu Þorvaldsdóttur í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Jóna Þorvaldsdóttir sýnir um þessar mundir ljósmyndir í sal Ljósmyndasafns Reykjavíkur í Grófarhúsi. Sýninguna nefnir hún Skynjanir. Jóna notar aðferðir frá upphafsárum ljósmyndatækninnar. „Ég tel mig nú ekki vera gamaldags í mér. Ég hef bara alltaf verið heilluð af gömlum ljósmyndum,“ segir Jóna. „Það er eitthvað dularfullt og rómantískt við þetta.“ Fólk á gömlum ljósmyndum lítur yfirleitt öðruvísi út en fólk á myndum í dag. Það er einhvern veginn alltaf alvarlegt á svipinn. „Já, það vill oft verða dramatískara en í dag, sem er líklega vegna þess að það þurfti að vera kjurt svo lengi þegar það var myndað. Þessar myndir sem ég hef tekið að undanförnu eru teknar á blaðfilmuvél svo fólk þarf að vera kjurt upp í nokkrar mínútur. Þá vill þessi gamli svipur koma á það.“ Jóna segir þó nokkuð mál að stunda þessar forneskjulegu aðferðir, kaupa þurfi inn efni að utan með ærnum tilkostnaði. En á hún digital vél? „Nei, og ég kann ekkert á svoleiðis! Ef ég sest fyrir framan tölvu fer mig að klæja í nefið og svo frýs allt hjá mér. Þannig að ég uni mér best í myrkaherberginu. Þar framkalla ég og stækka myndirnar á pappír. Ég kann það og líkar það best því ég hef stjórn á því ferli.“ Jóna lærði ljósmyndun við European Institute of Photography í Póllandi á árunum 1997-2000. Hún hefur búið víðsvegar um heim og sótt fjölda ljósmyndanámskeiða einkum í sígildum ljósmyndunaraðferðum. Til að auka áhrif mynda sinna málaði hún sýningarsal Ljósmyndasafnins grænan og súlur grænar, sem hún segir rýma við gullramma myndanna. Salurinn er tvískiptur og í hinu rýminu er sýning Jakobs Jakobssonar, Gengið að verki. Þær myndir gætu varla verið ólíkari en hinar mjúku myndir Jónu: svarthvítar myndir af byggingaframkvæmdum með sérstakri áherslu á myndir teknar á Íslandi á árunum 1955 til 1970. drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Fleiri fréttir Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Sjá meira