Pasta hefur hækkað um rúm 150 prósent 19. júlí 2010 05:30 Hagsmunaaðilar segja algengustu skýringuna á verðhækkun innfluttrar vöru vera hækkun heimsmarkaðsverðs.
Pasta hefur hækkað óvenju mikið í verði á síðustu árum hér á landi. Sé verðlagning borin saman við vísitölu neysluverðs sést glögglega að verðið tók stökk um mitt ár 2008 og fer svo stigvaxandi, hátt fyrir ofan vísitölu neysluverðs. Til samanburðar má skoða verðlag á kaffi, sem einnig er aðflutt vara, og sést að verðið heldur sig mestmegnis fyrir neðan vísitöluna. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að með verð á vörum sem þessum séu breytingar á heimsmarkaðsverði algengasta skýringin. „Heimsmarkaðsverð á olíu er mikið í umræðunni á Íslandi og fólk virðist almennt gera sér grein fyrir því að markaðurinn er háður því hér á landi,“ segir Andrés. „En það sem vill gleymast er að það gildir nákvæmlega það sama um hráefni til matvinnslu eins og kaffi, hveiti, hrísgrjón og annað slíkt.“ Andrés segir að uppskerubrestir á hráefnum til matvæla geti haft gífurleg áhrif á heimsmarkaðsverð. „Þegar kólnar í Brasilíu, þá rýkur verð á kaffi upp.“ Andrés segir mikilvægt að koma Íslendingum í skilning um að ekki sé sjálfgefið að gengislækkanir hafi verðlækkanir í för með sér. Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands sem er umboðsaðili fyrir Barilla pasta, tekur í sama streng og Andrés og segir ástæðu fyrir hækkunum vera almenna hækkun á heimsmarkaði. „Gengið spilar líka inn í. Þegar það bætist við hækkun á heimsmarkaðsverði verður útkoman þessi.“ Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir Íslendinga gera sér fulla grein fyrir því að verð úti í heimi hafi áhrif hér á landi á innfluttum vörum, en eftir styrkingu krónunnar þá kalli Neytendasamtökin eftir enn frekari verðlækkunum. „Ef allt væri eðlilegt ætti verð á pasta að vera á niðurleið eins og á öðrum innfluttum vörum,“ segir hann. „Innflytjendur vöru verja hækkanir með veikingu krónunnar og þá ætlumst við til að þeir séu sjálfum sér samkvæmir og lækki verð þegar krónan styrkist. Við eigum talsvert mikið inni af verðlækkunum ennþá þó að þetta hafi að hluta til gengið til baka.“ sunna@frettabladid.is
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira