Ákvörðun um samgöngumiðstöð bíður enn 19. júlí 2010 04:00 Hugmyndir um byggingu samgöngumiðstöðvar eru umdeildar í Reykjavík. Andstæðingar flugvallarins telja að með þeim sé völlurinn festur í sessi þótt skipulag sé senn að renna út og borgarbúar hafi þegar ákveðið í kosningu að flytja flugvöllinn.
Áform um byggingu 3.200 fermetra samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri eru enn í bið. Reykjavíkurborg á eftir að veita samþykki fyrir því að hefja 100 daga kynningarferli en framkvæmdir gætu fyrst hafist að því loknu. Því er óljóst hvort framkvæmdir munu hefjast á þessu ári. Því var lýst yfir í vetur er leið að framkvæmdir ættu að hefjast í sumar og 80-90 manns myndu fá vinnu við verkið á tólf mánaða framkvæmdatíma. Borgaryfirvöld og samgönguráðuneyti gerðu samkomulag um framkvæmdina í apríl og fyrir lá vilyrði lífeyrissjóða um að fjármagna verkefnið með lánum. Samgöngumiðstöðinni hefur verið ætlað að hýsa starfsemi tengda innanlandsflugi og hópferðabílum. Henni er ætlað að rísa í grennd við Loftleiðahótelið. Ráðgert hefur verið að innheimta nokkur hundruð króna gjald af hverjum seldum farmiða til að endurgreiða lán lífeyrissjóðanna vegna framkvæmdanna. Málið hefur hins vegar ekkert hreyfst frá því í apríl. Borgaryfirvöld tóku ekki ákvörðun um að hefja kynningarferlið meðal borgarbúa fyrir borgarstjórnarkosningarnar í maí í vor. Ný borgarstjórn hefur ekki fjallað um málið frá því hún var kjörin. Málið hefur verið umdeilt meðal borgarbúa. Andstæðingar flugvallar í Vatnsmýri telja að með framkvæmdinni verði flugvöllurinn festur í sessi þrátt fyrir að gildandi skipulag renni út eftir sex ár og þrátt fyrir að borgarbúar hafi ákveðið í atkvæðagreiðslu fyrir meira en áratug að flugvöllurinn eigi að víkja úr Vatnsmýri. Þrátt fyrir tilraunir undanfarna daga hefur Fréttablaðið ekki náð sambandi við nýjan formann og varaformann skipulagsráðs, Pál Hjaltason og Hjálmar Sveinsson, til að ræða málið og kanna vilja nýs meirihluta varðandi kynningarferli. Ekki náðist í gær í Ólöfu Örvarsdóttur skipulagsstjóra vegna málsins. Næsti fundur skipulagsráðs borgarinnar er áformaður 11. ágúst.- pg
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri sprauta sig með ólöglegu efni til að fá brúnni húðlit Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Sjá meira