Sakar fyrrverandi ráðherra um stjórnarskrárbrot Höskuldur Kári Schram skrifar 19. júlí 2010 12:44 Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður.
Sjávarútvegsáðherra ber samkvæmt lögum að gefa veiðar frjálsar séu útgefnar veiðiheimildir í ákveðnum fisktegundum ekki nýttar. Þetta er mat Kristins H. Gunnarssonar, fyrrverandi þingmanns. Hann sakar fyrrverandi sráðherra um að hafa virt lögin að vettugi og sýnt einbeittan brotavilja enda hafi það legið fyrir í mörg ár að úthafsrækjustofninn hafi verið vannýttur. Veiðar á úthafsrækju verða gefnar frjálsar á næsta fiskveiðiári samkvæmt ákvörðun sjávaútvegsráðherrar sem kynnt var á föstudag. Útgerðarmenn hafa mótmælt þessari ákvörðun og telja með henni sé ráðherra óbeint að innkalla veiðiheimildir og grafa þannig undan kvótakerfinu. Þeir ætla að funda með ráðherra í dag vegna málsins. Rækjuafli hefur minnkað stórlega á undanförnum árum og það er mat Hafrannsóknarstofnunar að stofninn sé vannýttur. Dæmi eru um að útgerðir nýti rækjukvótann einungis til að auka framsalsheimildir í öðrum fisktegundum. Útgerðarmenn benda á að mikið tap hafi verið á rækjuveiðum fyrir nokkrum árum og því hafi dregið úr afla. Olíuverð hafi þá verið mjög hátt og afurðaverð lágt. Á yfirstandandi fiskveiðiári bendi hins vegar allt til þess að kvótinn verði fullnýttur. Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, skrifar um málið á heimasíðu sinni í dag en Kristinn sat í sjávarútvegsnefnd Alþingis í átta ár, þar af eitt sem formaður. Kristinn bendir á - að ákvörðun ráðherra sé í fullu samræmi við lög um stjórn fiskveiða. Þegar stofn sé vannýttur beri ráðherra að heimila frjálsar veiðar. Kristinn furðar sig á því hvers vegna þessi ákvörðun hafi ekki verið tekin fyrr enda hafi það legið fyrir í mörg ár að úthafsrækjukvótinn hafi verið vannýttur. Beinir hann orðum sínum til fyrrverandi sjávarútvegráðherra og segir orðrétt: "Í störfum sínum hafa þeir sýnt einbeittan brotavilja fyrir LÍÚ varðandi úthafsrækjuna og gengið að ástæðulauau gegn skýrum ákvæðum stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi. " Árni M. Matthíesen gegndi embætti sjávarúvegráðherra árunum 1999 til 2005 og Einar K. Guðfinnsson, frá árinu 2005 til 2009. Steingrímur J. Sigfússon gengdi embættinu í tvo mánuði á síðasta ári.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Fleiri fréttir Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Sjá meira