Innlent

Kæra OR til úrskurðarnefndar um upplýsingamál

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jón og Haraldur vilja upplýsingar vegna sölunnar á HS Orku. Mynd/ Valgarður.
Jón og Haraldur vilja upplýsingar vegna sölunnar á HS Orku. Mynd/ Valgarður.
Orkuveita Reykjavíkur neitar að upplýsa um samskipti fyrirtækisins við Magma Energy og sölu hlutafjár í HS Orku. Synjunin hefur verið kærð til úrskurðanefndar um upplýsingamál.

Í tilkynningu kemur fram að þeir Jón Þórisson og Haraldi Hallgrímssyni, sem standa að baki vefsíðunni orkuaudlindir.is, ásamt Björk Guðmundsdóttur söngkonu og Oddnýju Eir Ævarsdóttur auk fleiri, hafi sent inn beiðni um upplýsingar til þriggja ráðuneyta, Orkuveitu Reykjavíkur og þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að HS Orku.

Orkuveitan hafnaði hins vegar beiðninni á grundvelli þess að um var að ræða upplýsingar sem vörðuðu viðskipti með hlutabréf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×