Vill sjá hæfismat áður en næstu skref verða tekin Ingimar Karl Helgason skrifar 4. ágúst 2010 14:25 Ásta Sigrún Helgadóttir sótti um embættið.
Ásta Sigrún Helgadóttir, fyrrverandi forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, segist bíða eftir að fá að sjá hæfismat um umsækjendur um stöðu Umboðsmanns neytenda, áður en hún ákveður sín næstu skref. Ásta Sigrún var spurð að því úr félagsmálaráðuneytinu í dag, hvort hún hefði enn áhuga á því að taka að sér starfið. Ásta sagði í samtali við fréttastofu að sér hefði ekki verið boðin staðan. Runólfur Ágústsson sagði upp störfum á fyrsta degi sínum í embættinu, með vísan til þess að hann nyti ekki trausts ráðherrans. Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, sagði í yfirlýsingu í morgun, að hann hefði sagt Runólfi að hann gæti ekki setið áfram í starfi, hefði hann notið fyrirgreiðslu sem almenningi hefði ekki staðið til boða. Ásta Sigrún var ásamt Runólfi metin hæfust til að gegna starfinu. Hún hefur óskað eftir skriflegum rökstuðningi frá ráðuneytinu. Í því felst, segir hún við fréttastofu, að fá að vita hvað í hæfismatinu fólst. Hún hafi starfað að þessum málum árum saman. Sigurður Líndal, lagaprófessor, segir í samtali við fréttavef Morgunblaðsins, að auglýsa beri embætti umboðsmanns skuldara að nýju, þar sem skipað hefði verið í embættið. Ásta Sigrún segist ekki hafa ákveðið hvort hún sæki um, verði embættið auglýst aftur. Aðspurð um hvað henni finnist um framgöngu ráðherra í málinu, segist hún sem minnst vilja um það segja. Málið sé samt sem áður „allt hið vandræðalegasta".
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Sjá meira