Innlent

Enginn með alvarlegan heilsubrest vegna öskunnar

Eyjafjallajökull
Eyjafjallajökull Mynd/Vilhelm
Ráðstafanir heilbrigðisyfirvalda vegna öskufalls úr gosinu í Eyjafjallajökli virðast hafa borið árangur að því er fram kemur í nýustu farsóttarfréttum Landlæknisembættisins.

Fólk var hvatt til þess að nota öndunargrímur og hlífðargleraugu þegar það hafðist við úti, meðan askan féll.

Enginn þeirra rúmlega tvö hundruð manna sem tóku þátt í rannsókn heilbrigðisyfirvalda hafi sýnt einkenni um alvarlegan heilsubrest sem rekja megi til gossins.



Farsóttarfréttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×