Innlent

Fundu ólöglegt laxanet í Ísafjarðardjúpi

Þegar lögreglumenn frá Ísafirði fóru í efitrlitsferð út á Ísafjarðardjúp með fulltrúum Fiskistofu nýverið, fundu þeir ólöglegt net, sem að öllum líkindum var lagt til að veiða lax.

Lagt var hald á netið, en engin merki eða einkenni voru á því. Þetta er í þriðja sinn í sumar sem lögreglan finnur slík net í Djúpinu, en öll málin eru enn óupplýst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×