Höfðar mál gegn Ríkisskattstjóra 4. ágúst 2010 03:00
Bjarki Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi, hefur höfðað mál gegn Ríkisskattstjóra fyrir héraðsdómi og krafist ógildingar á úrskurði embættisins vegna söluréttasamninga. Hann telur Ríkiskattstjóra vanhæfan þar sem greinaskrif í blaði embættisins sýni dylgjur og fyrirlitningu á bankamönnum. Ríkisskattstjóri vísar slíkum ávirðingum á bug. Fyrrverandi stjórnendur Glitnis og Kaupþings fengu margir hverjir bakreikning frá skattyfirvöldum fyrr í sumar vegna söluréttasamninga. Hæstu fjárhæðirnar voru hjá Kaupþingi en dæmi eru um að menn hafi hagnast um allt að fimm hundruð milljónir króna. Skattyfirvöld kröfðust þess að samningarnir verði skattlagðir sem launatekjur en ekki fjármagnstekjur, þ.e. að meta eigi undirliggjandi ráðstafanir sem sölurétturinn tryggir sem kaupréttartekjur. Ríkisskattstjóri hefur þegar unnið sambærilegt mál gegn Þórði Má Jóhannessyni, fyrrverandi forstjóra Straums, fyrir yfirskattanefnd og héraðsdómi. Bjarki Diego, lögmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi, er einn þeirra stjórnenda sem fengið hefur úrskurð frá Ríkiskattstjóra vegna söluréttasamnings. Bjarki hefur höfðað mál gegn Ríkiskattstjóra og krefst þess að úrskurðurinn verði felldur úr gildi. Málsástæður eru flestar lagalegs eðlis, s.s. að skattlagningin eigi ekki rétt á sér þar sem tekjur voru engar því Bjarki nýtti aldrei söluréttinn. Að auki er því haldið fram að Ríkiskattstjóri sé vanhæfur til að úrskurða í málinu vegna þeirra dylgna og fyrirlitningar á bankamönnum sem birst hafa í greinaskrifum í Tíund, fréttablaði Ríkisskattstjóra. Búið er að þingfesta málið og hefur ríkislögmaður frest til 10. Ágúst til að koma með andmæli. Bjarki Diego, vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu en staðfesti þó að hann hefði höfðað málið. Skúli Eggert Þórðarson, Ríkisskattstjóri, vísar því á bug að um dylgjur sé um að ræða í garð bankamanna, aðeins hafi verið sagt frá staðreyndum og þær séu að íslenskar fjármálastofnanir hafi reynt allt hvað þær gátu til að koma í veg fyrir að skattyfirvöld fengju nauðsynlegar upplýsingar. Frá hefur þessu hafi verið greint í Tíund og víðar.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Sjá meira