Innlent

Gefi eftir gjöld af gatnagerð

Tímabundin niðurfelling gatnagerðargjalda hvetur til framkvæmda.
Tímabundin niðurfelling gatnagerðargjalda hvetur til framkvæmda.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í bæjarráði Kópavogs leggja til að gatnagerðargjöld vegna stækkunar á eldra húsnæði verði felld niður tímabundið.

Vísa þeir til hvatningarátaks í þágu innlendrar atvinnustarfsemi, meðal annars með hækkaðri endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við eigið íbúðarhúsnæði og sumarhús og til sérstakra framkvæmdalána sem sumar fjármálastofnanir bjóði almenningi á hagstæðum kjörum.

„Sveitarfélög geta lagt sitt af mörkum í þessum efnum og liggur beinast við að fella niður opinber gjöld vegna framkvæmda á eldra húsnæði,“ segir í tillögunni. Afgreiðslu hennar var frestað á síðasta fundi. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×