Innlent

SÁÁ frestar lokun göngudeildar á Akureyri

Jón Hákon Halldórsson skrifar
SÁÁ hefur ákveðið að fresta lokun göngudeildar á Akureyri en henni átti að loka þann 1. júní næstkomandi.

Ástæðan fyrir frestuninni er sú að Akureyrabær ákvað nýlega að leggja göngudeidlinni til fé sem nemur um 50% af kostnaði við rekstur deildarinnar. Í framhaldi var ákveðið að reyna í góðri samvinnu við bæjarráð Akureyrar og íbúana að tryggja rekstur göngudeildarinnar.

Í frétt á vef SÁÁ segir að á árinu 2010 sé samtökunum ætlað að reka allt göngudeildarstarf fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga fyrir 40 milljónir króna. Kostnaðurinn við göngudeildarstarfið sé áætlaður rúmlega 100 milljónir króna. Það hafi því verið ljóst að þrátt fyrir hækkun komugjalda yrði að draga þjónustuna verulega saman og loka göngudeildinni á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×