Þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng 20. maí 2010 16:45
Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann um sextugt, Jón Sverri Bragason, til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng sem var á aldrinum þrettán til fimmtán ára þegar brotin voru framin. Að auki er manninum gert að greiða drengnum eina og hálfa milljón króna í bætur. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í fjögurra ára fangelsi en Hæstiréttur leit til þess við ákvörðun refsingar að hluti brotanna varðaði við þriðju málsgrein 202. greinar hegningarlaga en refsimörk hennar eru mun lægri en samkvæmt fyrstu málsgrein sama ákvæðis. Þá vantaði viðhlítandi skýringu á því hvers vegna tafir urðu á því að senda málið til ríkissaksóknara eftir að rannsókn lauk auk þess sem það dróst í rúma átta mánuði að ljúka gerð málsgagna. Jón Sverrir tældi piltinn til kynmaka með því að notfæra sér þroskaskerðingu hans, reynsluleysi hans af kynlífi og tölvufíkn, en Jón greiddi drengnum fyrir kynmökin með tölvuleikjum eða peningum. Jón Sverrir fór sjálfur fram á að málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar og fór hann fram á sýknu og til vara að refsing hans yrði milduð. Ákæruvaldið fór hins vegar fram á þyngingu refsingarinnar. „Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur um sakfellingu ákærða, þó þannig að ekki er, að virtum gögnum málsins, fram komin sönnun þess að hann hafi brotið gegn A eins og lýst er í héraðsdómi fyrr en um vorið 2006," segir meðal annars í dómi Hæstaréttar.
Mest lesið Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Erlent Fleiri fréttir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita Sjá meira