Vill að sviplegt fráfall sonarsonar síns verði öðrum víti til varnaðar Karen Kjartansdóttir skrifar 20. maí 2010 19:18 Rólan var tekin niður eftir að drengurinn lést. Afi drengsins vill að soglegt fráfall sonarsonarins verði öðrum víti til varnaðar. „
Það er ekkert sem getur fært okkur drenginn aftur en ég get varað fólk við þeim hættum sem víða leynast og þannig komið í veg fyrir annað slys," segir Hákon Hákonarson, afi litla drengisins sem lést á mánudag, eftir að hafa slasast alvarlega á róluvelli. Kristófer Darri Ólafsson var þriggja ára gamall en hefði orðið fjögurra ára í september. Á laugardaginn slasaðist hann á leikvelli fyrir utan fjölbýlishús í Grafarvogi eftir að kaðall úr rólu vafðist um hann. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans á mánudag vegna áverka sem hann hlaut af slysinu. Hákon Hákonarson afi drengsins vill að sviplegt fráfall sonarsonar síns verði öðrum víti til varnaðar. Hann vill að sem flestir viti hvernig leiktækið sem Kristófer slasaðist í lítur út svo hægt sé að taka það niður og koma þar með í veg fyrir að fleiri börn hljóti skaða af. Hann minnir á að þótt leiktæki uppfylli alla staðla verði fólk að vera vakandi fyrir ýmsum hættum í umhverfinu. Til dæmis stafi börnum mun meiri hætta af rólum með kaðalböndum en rólum með keðjum. Utan um keðjurnar eigi svo helst að vera gúmmí- eða plasthlíf sem dragi enn úr líkum á sambærilegum slysum. „Ef það er eitthvað tæki sem getur skapað börnunum okkar hættu þá viljum við ekki að slíkt tæki sé í umferð,“ segir Hákon. „Ég vil að fólk gæti að því hvernig búið er að börnum. Hætturnar leynast víða og slys geta alltaf gerst en okkar er að reyna að fyrirbyggja að illa fari eins vel og við getum. Það hafa það mörg slys orðið í kaðlarólum í gegnum tíðina að þær eru eitthvað sem við ættum ekki að hafa í kringum börn,“ bætir hann við. Þess má geta að forstjóri BYKO, sem selur leiktækið, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að leiktækið hefði verið tekið úr sölu á meðan rannsókn stendur yfir. Samskonar tæki má þó finna víða, til dæmis er eitt slíkt á næsta leikvelli við þann sem Kristófer slasaðist á. Útför Kristófers verður frá Grafavogskirkju klukkan eitt á morgun.
Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Fleiri fréttir Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Sjá meira