Vilja sex milljónir til þess að stórbæta samgöngur til Vestmannaeyja 20. maí 2010 19:01 Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjabær og Eimskip hafa gert samkomulag um að ferðum Herjólfs verði fjölgað úr 1360 í 1485 á ári og sigli því 4 ferðir á dag, allt árið. Bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, lagði fram minnisblað um mikilvægi þess að ferðum Herjólfs verði fjölgað úr 1360 í 1488 í dag. Þar kemur meðal annars fram að verði einungis farnar 1360 ferðir liggi fyrir að frá 1. okt til 31. apríl verði fyrstu farþegar til Eyja ekki komnir þangað fyrr en um klukkan eitt eftir hádegi. Ef 125 ferðum er bætt við eru fyrstu farþegar komnir til Eyja um hálf tíu fyrir hádegi. Þetta gerir það einnig að verkum að möguleika sveitarfélaga og fyrirtækja til samstarfs svo sem hvað varðar menntun, samnýtingu á heilbrigðisþjónustu og fleira er útilokað eða í besta falli verulega skert samkvæmt minnisblaði bæjarstjórans. Í minnisblaðinu kemur enn fremur fram að Eimskip hafi að beiðni Vestmannaeyjabæjar reiknað kostnað við fjölgun ferða úr 1360 í 1485. Niðurstaða þeirra reikninga var að brúttó kostnaðarauki yrði um 18 milljónir króna. Þá segir í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ að bæjarstjórnin og þingmenn suðurlands hafa ítrekað reynt að fá skilning á mikilvægi þessara viðbótaferða hjá samgönguyfirvöldum en vegna niðurskurðar í ríkisfjármálum hafa samgönguyfirvöld ekki getað orðið við slíkri beiðni. Samkomulagið við Eimskip er háð því að ríkið leggi til 33 prósent af kostnaði, eða 6 milljónir króna.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Sjá meira