Ábyrgðarmanni stefnt þrátt fyrir glóðvolgt frumvarp Hafsteinn Hauksson skrifar 20. maí 2010 18:37 Alþingishúsið.
Daginn eftir að Lánasjóður íslenskra námsmanna stefndi skuldara og föður hans fyrir héraðsdómi Reykjavíkur var manninum veitt heimild til greiðsluaðlögunar. Maðurinn hefur áhyggjur af ábyrgðarmanninum föður sínum, en samkvæmt frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi verður kröfuhöfum óheimilt að krefjast greiðslu hjá ábyrgðarmanni skuldara í greiðsluaðlögun. 29. apríl síðastliðinn var gefin út stefna á hendur Gunnari Kristni Þórðarsyni vegna vanskila hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Föður Gunnars var einnig stefnt, en hann er ábyrgðarmaður lánsins. Aðeins sólarhring síðar var Gunnari svo veittur úrskurður um sértæka greiðsluaðlögun, en samkvæmt frumvarpi um greiðsluaðlögun sem nú liggur fyrir Alþingi verður kröfuhöfum óheimilt að krefjast greiðslu hjá ábyrgðarmanni skuldara í greiðsluaðlögun. Gunnar segir réttaráhrif greiðsluaðlögunarinnar sambærileg við greiðslustöðvun og honum sé því beinlínis óheimilt að greiða samningskröfur á meðan, þar á meðal kröfu Lánasjóðsins. Lánasjóðurinn hyggst þrátt fyrir það ekki afturkalla stefnuna, því Gunnari hafi borist stefnan áður en heimild til greiðsluaðlögunar var veitt. Lánasjóðurinn hefur þó boðið Þórði að óska eftir fresti fyrir héraðsdómi þar til greiðsluaðlögunin liggur fyrir, og muni sjóðurinn ekki aðhafast á meðan. Gunnar segist upplifa óvissu gagnvart kröfuhöfum sínum eftir að hann hóf greiðsluaðlögunarferlið. Hann segir Lánasjóðinn þó hafa gengið harðar fram en aðra kröfuhafa og hefur miklar áhyggjur af föður sínum sem er ábyrgðarmaður lánsins. „Það er ömurlegt, það er hryllilegt til þess að líta að foreldrum mínum sé stefnt, vammlausu og grandvöru fólki, sem hefur alltaf staðið í skilum," segir Gunnar.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira