Yfirlýsing frá starfsfólki Stöðvar 2 og Vísis 11. maí 2010 11:49 Starfsfólk og fréttamenn Stöðvar 2 og Vísis harma uppsögn Óskars Hrafns.
Fréttamenn og aðrir starfsmenn á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis harma uppsögn Óskar Hrafns Þorvaldssonar úr starfi fréttastjóra. Undir stjórn hans hefur fréttastofan sýnt djörfung og ábyrgð á erfiðum tímum í þjóðfélaginu. Óskar Hrafn hefur staðið heill á bakvið fréttamenn Stöðvar 2 og Vísis þegar sótt hefur verið að fréttastofunni úr ýmsum áttum og aldrei látið annað en fréttamat og kröfuna um miðlun upplýsinga til almennings ráða ferðinni í störfum sínum. Á fundi með honum í dag þar sem hann greindi frá uppsögn sinni og ástæðunni fyrir henni, var einróma skorað á hann að halda áfram störfum. Óskar Hrafn hefur sjálfur gert grein fyrir því opinberlega hvers vegna hann hefur ákveðið að hverfa úr stóli fréttastjóra. Þær ástæður sýna að hann er samkvæmur sjálfum sér og er hann maður að meiru fyrir vikið. Mættu fleiri í þjóðfélaginu taka hann sér til fyrirmyndar í þeim efnum. Fréttamenn og annað starfsfólk á Stöð 2 og Vísi telja engu að síður að yfirlýsing sú sem gefin var í fréttum miðla okkar í gær vegna fréttar um meinta fjármagnsflutninga hóps manna og dregin var til baka með yfirlýsingunni, hafi dugað til. Óskar Hrafn gerir meiri kröfur til sjálfs síns og sýnir það með ákvörðun sinni og þótt okkur sé það sárt, þá virðum við þá ákvörðun hans. Við treystum því að yfirstjórn fyrirtækisins vandi valið á eftirmanni Óskars Hrafns en erfitt verður að fylla hans skarð á fréttastofunni. Það er alltaf mikilvægt að hafa einarðan og sjálfstæðan leiðtoga á fréttastofu, hvað þá á tímum eins og nú ríkja í íslensku samfélagi. Undir stjórn Óskars Hrafns hefur fréttastofan náð að vera í fararbroddi í umfjöllun um þá miklu atburði sem skekja íslenskt samfélag, enda hefur það sýnt sig í auknu áhorfi á fréttir Stöðvar 2 og auknum lestri á Vísi. Fréttamenn og annað starfsfólk á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis þakka Óskari Hrafni samstarfið og óska honum alls hins besta í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.
Mest lesið Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Innlent Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Innlent Þórdís Lóa ætlar ekki fram Innlent Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Erlent Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Innlent Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Innlent Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Innlent Ölvaðir og í annarlegu ástandi Innlent Vill drónavarnir á Íslandi Innlent Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Innlent Fleiri fréttir Úr inniskónum og yfir í hringiðu heimsmálanna Þórdís Lóa ætlar ekki fram Ölvaðir og í annarlegu ástandi Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Vill drónavarnir á Íslandi Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Sundlauginni í Reykholti í Bláskógabyggð lokað í eitt ár Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Farið yfir Vítisenglamálið og drónavarnir á Íslandi Neysluvatnið óhreint eftir að aurskriða féll Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Myndband: Lögregla stóð vörð vegna Vítisenglaveislu Útgjöld vegna útlendingamála lækka um þriðjung Halla mun funda með Xi Jinping 40 ára afmæli Þorlákskirkju fagnað í Þorlákshöfn Vítisenglar lausir úr haldi og týndir ferðamenn Mikilvægt að sýna Grænlendingum stuðning Allir þrír lausir úr haldi Forseti Íslands ræðir fyrsta árið í embætti Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Breiðhyltingar bíði í hálftíma eftir lögreglu: „Verður þetta þá ekki bara búið?“ Mikillar vanþekkingar gæti á þjónustu við trans börn Sungið og sungið í Tungnaréttum Jóhannes Valgeir er látinn Sjá meira