Aukningin í takt við áætlanir 11. maí 2010 03:15 EVE Online leikinn í Laugardalshöllinni í október í fyrra. Fréttablaðið/Vilhelm
Reiknað er með því að starfsmenn tölvuleikjafyrirtækisins CCP, sem meðal annars framleiðir netleikinn EVE Online, verði í lok þessa árs rúmlega 620 talsins. Þetta kemur fram í auglýsingu sem fyrirtækið birti um helgina þar sem óskað var eftir 150 nýjum starfsmönnum. Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, segir kall eftir auknum starfskrafti í takt við áætlanir fyrirtækisins um vöxt og aukningu umfangs, en fyrirtækið er nú með þrjá leiki í framleiðslu og er með skrifstofur í Newcastle, Atlanta og í Shanghaí. „Þetta er samkvæmt áætlun sem við höfum unnið eftir síðustu þrjú ár,“ segir Hilmar Veigar og bætir við að fjöldi ráðninga nú hafi verið ákveðinn í október í fyrra. Helstu nýbreytnina nú segir hann vera hvað fyrirtækið auglýsi á áberandi hátt eftir nýjum starfskrafti, en það sé til þess að sem flest gott fólk viti af þeim. Þá segir Hilmar engar áætlanir uppi um að skrá fyrirtækið á markað. Ekki væri tilefni til að lesa annað úr því að einnig hafi verið um helgina auglýst eftir „corporate controller“ (fyrirtækisstjóra sem starfar undir fjármálastjóra) með reynslu af hlutafjárútboðum annað en að CCP leitaðist ávallt við að ráða sem hæfast fólk með sem víðtækasta reynslu. - óká
Mest lesið Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Tugir með magapínu eftir þríþraut við Laugarvatn Innlent Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Innlent Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Erlent Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Grunaðir um að stinga mann í rassinn að tilefnislausu Innlent Fimm grunuð um að ráðast á mann sem kom öðrum til bjargar Innlent Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Erlent Sjö ára dómur fyrir að stinga tvo: Hittu árásarmanninn í fyrsta skipti þessa nýársnótt Innlent Ákvörðun saksóknara sendi undarleg skilaboð Innlent Fleiri fréttir „Kemur ekki til greina að fresta þessu máli“ Fimm grunuð um að ráðast á mann sem kom öðrum til bjargar Þrír milljarðar til viðbótar í viðhald vega Sjö ára dómur fyrir að stinga tvo: Hittu árásarmanninn í fyrsta skipti þessa nýársnótt Vill vindorkuver í Garpsdal og breytir tillögu stjórnar Tugir með magapínu eftir þríþraut við Laugarvatn „Við erum með háskólakerfi sem er fjármagnað undir OECD meðaltali“ Rembihnútur á þinginu en örþrifaráð ekki til umræðu Ákvörðun saksóknara sendi undarleg skilaboð Þinglok ekki í augnsýn og háskólarnir undirfjármagnaðir Grunaðir um að stinga mann í rassinn að tilefnislausu Ný kort sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi Bandarískur kjarnorkukafbátur í heimsókn Formenn þingflokka halda spilunum þétt að sér Skjálfti upp á 3,4 í morgun á Suðurlandi Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Hiti nær 22 stigum fyrir austan Fjarlægðu „óvelkominn aðila“ af öldrunarheimili Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Bíll í ljósum logum á Skaganum Vatnslögn í sundur í Smáralind Aldrei fleiri börn á biðlista og útrás í Kína Á hundrað og þrjátíu á sextíu götu Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Leggja til 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Sjá meira