Stjórnarandstaðan ekki með í ráðum 11. maí 2010 04:00 Formaður Sjálfstæðisflokksins segir það í takt við annað að ríkisstjórnin hafi ekki samráð um stór mál. fréttablaðið/gva
Ríkisstjórnin hefur ekki haft samráð við stjórnarandstöðuna um fyrirhugaðar breytingar á skipan stjórnarráðsins. Steypa á saman nokkrum ráðuneytum og færa til málaflokka. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir málið ekki hafa verið rætt við stjórnarandstöðuna. Það ráðslag komi honum í sjálfu sér ekki á óvart þar sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafi aldrei reynt að mynda breiða sátt um stór mál. „Þetta er bara í takt við annað hjá þessari ríkisstjórn,“ segir Bjarni. Sjálfsagt og eðlilegt sé að hafa samráð um meiri háttar skipulagsbreytingar. Aðspurður segist Bjarni alls ekki fráhverfur hugmyndum um sameiningu iðnaðarráðuneytisins og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins í atvinnuvegaráðuneyti. „Það er hins vegar ástæða til að hafa miklar áhyggjur ef grafa á undan grundvelli þeirrar starfsemi sem farið hefur fram innan ráðuneytanna til þessa. Mér hugnast til dæmis alls ekki hugmyndir um að færa alla auðlindanýtingu frá sjávarútvegsráðuneytinu. Að sama skapi þarf að svara spurningum um hvernig gæta eigi að hagsmunum landbúnaðarins. Það þarf að gæta að því að hann verði ekki utanveltu í stóru ráðuneyti.“ - bþs
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Innlent Fleiri fréttir Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Sjá meira