Æðislega gaman á Evrópumótinu 29. janúar 2010 06:00 Adolf Ingi Erlingsson hefur skemmt sér vel á EM í handbolta, enda árangurinn verið frábær.fréttablaðið/Eás
Íþróttafréttamaðurinn Adolf Ingi Erlingsson lýsir á laugardaginn sínum öðrum undanúrslitaleik á skömmum tíma í EM-keppninni í handbolta. Hann er að vonum í skýjunum yfir góðum árangri strákanna okkar. Síðast lýsti Adolf Ingi undanúrslitaleik Íslendinga á móti Spánverjum á Ólympíuleikunum sælla minninga. Vonandi verða heilladísirnar aftur með okkur Íslendingum á laugardaginn. „Þetta er búið að vera æðislega skemmtilegt eins og alltaf þegar liðinu gengur vel. En þetta fer voðalega mikið eftir gengi liðsins. Þegar það gengur illa er erfitt að taka viðtölin við þá og allir eru svolítið súrir. Svo þegar það gengur vel er þetta bara óendanlega gaman,“ segir Adolf Ingi, sem var í essinu sínu í sigurleiknum á móti Norðmönnum. Almenningur virðist skiptast dálítið í tvo hópa þegar Adolf er annars vegar. Margir eru mjög ánægðir með hann á meðan aðrir finna honum flest til foráttu. Adolf kippir sér lítið upp við það. „Mér finnst sorglegt að fólk geti ekki fundið sér eitthvað annað til að dunda sér við,“ segir hann. „Þetta er bara vinnan mín og maður reynir að gera þetta eins vel og maður getur. Maður getur ekkert verið að velta sér upp úr því hvort maður pirri einhverja. Þegar þú ert með um og yfir 80% af þjóðinni að fylgjast með er hætt við því að af öllum þessum fjölda eru ekki allir sáttir.“ Adolf er sannfærður um að Íslendingar geti komist alla leið á EM, sérstaklega eftir sigurinn frábæra gegn Noregi. „Það sem er svo gaman að sjá er sjálfstraustið og tiltrúin sem er komin í þennan hóp. Þeir búa svo ofboðslega mikið að þessum árangri á Ólympíuleikunum. Núna vita þeir hvað þeir eru góðir. Ef allt gengur upp geta þeir unnið öll liðin í þessu móti. Þeir eru svakalega vel innstilltir og góðir þessir drengir.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira