Innlent

Nítján lögregluþjónar útskrifaðir

Frá brautskráningunni í Bústaðakirkju.
Frá brautskráningunni í Bústaðakirkju.
Nítján lögregluþjónar útskrifuðust úr Lögregluskóla ríkisins en athöfnin fór fram í Bústaðakirkju um miðjan mánuðinn.

Við athöfnina fluttu ávörp Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, Þórunn J. Hafstein, ráðuneytisstjóri dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum og Sigurður Ottó Kristinsson, sem talaði fyrir hönd útskriftarhópsins. Brot úr ávörpum þeirra er hægt að lesa hér.

Lögreglukór Reykjavíkur söng tvö lög við athöfnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×