Dagur gagnrýnir Árna Pál flokksbróður sinn 18. maí 2010 15:34 Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur hefur komið á framfæri „alvarlegum athugasemdum" við forystu ríkisstjórnarinnar og Árna Pál Árnason félagsmálaráðherra vegna yfirlýsinga Árna um nauðsynlegan niðurskurð í velferðarkerfinu. Á dögunum sagði Árni óhjákvæmilegt að fækka starfsmönnum hins opinbera. Borgarstjóri spurði Dag út í ummæli flokksfélaga síns á borgarstjórnarfundi í dag. Að mati Dags er óásættanlegt að niðurskurður í velferðarkerfinu leiði til uppsagna og öllu máli skipti að staðinn verði vörður um þjónustuna eins og nokkur er kostur. Dagur sagði hagræðingu nauðsynlega en að þar séu fleiri leiðir færar en fækkun starfa. Þá sagði hann flest benda til þess að niðurskurðarþörfin sem lá yfirlýsingum ráðherra til grundvallar hafi verið ofmetin og miklu nær er að leita hagræðingar í samvinnu við verkalýðsfélög, starfsfólk og stofnanir. Þessu sagðist Dagur ætla að fylgja fast eftir við útfærslu niðurskurðar ríkisfjármála í sumar og haust, að því er fram kemur í tilkynningu. Því er bætt við að hið sama eigi við um stjórn borgarinnar. „Velferð og atvinna skipta mestu máli í kreppu," sagði Dagur að lokum.
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Hélt á lokuðu umslagi Innlent Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Fleiri fréttir Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Sjá meira