Starfsmannafjöldinn þrefaldist - fjárþörf dómstóla einnig metin 18. maí 2010 16:24
Gert er ráð fyrir því að starfsmannafjöldi hjá sérstökum saksóknara þrefaldist frá því sem nú er og verði allt að 80 manns en ríkisstjórnin hefur samþykkt að stórauka fjárveitingu til embættisins og verður fimm milljörðum veitt allt í allt til embættisins. Í greiningu á kostnaðarþáttum sem embættið skilaði inn er gert ráð fyrir að meginþungi rannsókna verði á árunum 2010-2011 og að þeim verði lokið að fullu á fyrri hluta ársins 2013. Þá segir í greiningunni að gert sé ráð fyrir að fyrstu ákærur verði gefnar út í maí 2010 en meginþungi dómsmeðferðar verði á árunum 2012-2014. Með tilliti til mannréttindasjónarmiða sé nauðsynlegt að gera ráð fyrir að öllum málum verði lokið fyrir árslok 2014 og geta áætlanir að mati embættisins ekki tekið mið af öðru tímamarki. Þá samþykkti ríkisstjórnin einnig í morgun að fela ráðuneytisstjórum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis og dómsmála- og mannréttindaráðuneytis að meta nauðsynlegar fjárveitingar til þess að styrkja stöðu og sjálfstæði dómstólanna, einkum Hæstaréttar, í ljósi aukins málafjölda m.a. vegna bankahrunsins og stuðla þannig að tiltrú almennings á starfsemi þeirra. „Einnig meti ráðuneytisstjórarnir nauðsyn þess að styrkja fjárhagslegar forsendur Fjármálaeftirlitsins til þess að sinna rannsóknum og eftirliti," segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneyti.
Tengdar fréttir Sérstakur saksóknari fær milljarða til að ljúka rannsóknum Embætti sérstaks saksóknara verður styrkt verulega með 470 milljóna aukafjárveitingu í ár og 960 milljóna fjárveitingum á næsta og þarnæsta ári. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag. Heildarframlög til embættisins hafa því verið aukin gríðarlega en gert er ráð fyrir að saksóknarinn ljúki störfum árið 2014 og á því tímabili hafi það fengið fimm milljarða króna frá ríkinu. 18. maí 2010 14:22 Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Erlent Fleiri fréttir Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Sjá meira
Sérstakur saksóknari fær milljarða til að ljúka rannsóknum Embætti sérstaks saksóknara verður styrkt verulega með 470 milljóna aukafjárveitingu í ár og 960 milljóna fjárveitingum á næsta og þarnæsta ári. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag. Heildarframlög til embættisins hafa því verið aukin gríðarlega en gert er ráð fyrir að saksóknarinn ljúki störfum árið 2014 og á því tímabili hafi það fengið fimm milljarða króna frá ríkinu. 18. maí 2010 14:22