Kolólöglegur lánasamningur Lýsingar 6. ágúst 2010 06:30 Neytendastofa hefur fengið ábendingar um að þetta eigi við um fleiri samninga.Fréttablaðið/gva
Neytendastofa telur að Lýsing hafi brotið ýmis ákvæði neytendalaga við gerð samnings um bílalán manns sem kvartaði við Neytendastofu. Niðurstaðan hefur áhrif á aðra samninga Lýsingar sem eins háttar til um. Ágallarnir á samningnum gera það að verkum að viðsemjandinn þarf ekki að borga verðtryggingu af innlendum hluta lánsins, vaxtaálag eða breytilega vexti, vegna þess að það gleymdist að tilgreina þessi atriði með fullnægjandi hætti í samningnum, að því er fram kemur í ákvörðun Neytendastofu. Viðsemjandinn kvartaði yfir þessu til Neytendastofu og viðurkennir Lýsing í greinargerð sinni til Neytendastofu að ýmis mistök hafi verið gerð við samningsgerðina. Ákvörðun Neytendastofu er bindandi og leggur þá skyldu á Lýsingu að bregðast við og láta af háttsemi sinni. Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri hjá Neytendastofu, segir augljóst að ekki hafi verið vandað til samningsgerðarinnar hjá Lýsingu. Hún getur ekki sagt til um hvaða þetta þýðir fyrir lántakann í krónum talið, enda fari það eftir lánsfjárhæð, lánstíma og öðru. Þórunn segir að Neytendastofa hafi fengið ábendingar um sambærileg mistök á fleiri samningum og að ákvörðunin í þessu tiltekna máli ætti að gilda um alla samninga þar sem eins var farið. Í ákvörðun Neytendastofu kemur fram að samkvæmt lögum um neytendalán geti lántakendur átt rétt á skaðabótum hafi lánveitandi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar við lántökuna. Slíkar kröfur verði að leysa með samningum eða fyrir dómstólum, enda taki Neytendastofa ekki afstöðu til slíkra skaðabótakrafna. Í yfirlýsingu frá Lýsingu sem birt var á vef félagsins í gær segir að ekki hafi verið ákveðið hvort ákvörðun Neytendastofu verði vísað til áfrýjunarnefndar neytendamála. Þar segir enn fremur að athugasemdirnar eigi við um samningsform sem notað hafi verið við takmarkaðan hluta af bílalánasamningum félagsins. Mikilvægt sé að samningsform séu hafin yfir vafa, og því hafi flest samningsform Lýsingar þegar verið endurskoðuð. Lýsing hefur fjórar vikur til að áfrýja til áfrýjunarnefndar, og þaðan má áfrýja til dómstóla. Héraðsdómur hefur þegar dæmt Lýsingu í óhag í máli þar sem sami ágalli var á samningi hvað verðtrygginguna snerti. - sh, bj
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Artemis II er á heimleið Erlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Sjá meira