Innlent

Bílvelta á sleipum vegi

Frá Þingvöllum
Frá Þingvöllum
Bíll valt á Þingvallavegi, rétt hjá þjónustumiðstöðinni á Þingvöllu, um klukkan fimm í dag. Kona á þrítugsaldri var í bílnum og hlúðu vegfarendur að henni þangað til að sjúkra- og lögreglubíll kom á staðinn. Mikil rigning var á svæðinu og samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Selfossi virðist vegurinn hafa verið gífurlega háll enda mikið rignt í dag.

Konan var flutt á slysadeild í Reykjavík en er ekki alvarlega slösuð að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×