Harpa verður ekki alveg tilbúin við opnun 6. ágúst 2010 05:00 Taka þarf niður stálvirkið á suðurhlið hússins sem snýr að Seðlabankanum. Nýtt stálvirki kemur til landsins í desember.fréttablaðið/valli
Menning Skemmdir sem uppgötvast hafa í stálvirki glerhjúps á suðurhlið tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu valda því að húsið verður ekki að fullu tilbúið við opnun þess næsta vor. „Húsið verður ekki alveg tilbúið en allir salirnir og anddyri verða til reiðu. Það er einungis hluti glerhjúpsins á suðurhlið hússins sem verður ekki tilbúinn en þetta á ekki að hafa áhrif á notkun hússins,“ segir Sigurður Ragnarsson, framkvæmdastjóri verkefnisins hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV). Skemmdirnar eru á hornum sexstrendinga sem mynda stálvirki glerhjúpsins á suðurhlið hússins. Sigurður segir að framkvæmdum verði að fullu lokið um mitt næsta sumar. Hafist verður handa við að taka niður gallaða stálvirkið í nóvember en búist er við nýju stálvirki hingað til lands í desember. Stálvirkið var smíðað af kínverska verktakafyrirtækinu Lingyun sem hefur að sögn ÍAV fallist á að taka á sig tjónið sem af þessu hlýst en það hleypur á hundruðum milljóna. Spurður hvort einhver kostnaður falli á þá innlendu aðila sem að verkefninu standa segir Sigurður: „Við erum að vonast til þess að allt tjónið verði bætt af kínverska fyrirtækinu. Það er eðlilegt að þeir sem valda tjóninu beri ábyrgð á því.“ Að sögn Sigurðar er búið að ganga úr skugga um það að aðrir hlutar stálvirkis hússins séu í lagi. „Hornin sem eru meginorsök þessa vanda eru einungis á suðurhlið hússins þar sem sexstrendingarnir eru.“- mþl
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Enn tekist á um þingstörfiin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart Sjá meira